Wednesday, December 13, 2006

Desembergetraun

Góðir hálsar, hin geysivinsæla desembergetraun heldur áfram göngu sinni. Eins og allir vita var áramótaheitið mitt um síðustu áramót að vera betri við sjálfan mig. Það hefur að mestu leyti gengið eftir, þó auðvitað hafi ekki allt farið eins og til var ætlast. Nú er hins vegar komið að nýju áramótaheiti og spurningin er: Hvert verður nýja áramótaheitið mitt? Svör sendist afgreiðslu merkt Ósérhlífinn. Verðlaunin eru sem fyrr mánaðargisting í Davis, nánar tiltekið að Eastlake Apartments.
Myndir á leiðinni.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Áramótaheitið?

Heimsækja Önnu og Palla til LA að minnsta kosti tvisvar á árinu.

Ég hafði rétt fyrir mér, er það ekki?

Bíð spennt eftir myndum.

Kveðja,
Anna Þorbjörg

P.s. Það þýðir ekkert að segjast ætla að hætta að borða nammi á nýju ári, ég hef reynt það a.m.k. 10 sinnum og best náð 17 dögum, í janúar 2005...

9:12 PM  
Blogger Fjölskyldan Barðaströnd 4 said...

Elsku mágsi, ég held ég hafi unnið getraunina.

Þú ætlar að taka þetta á húmornum!

Hlakka til að fá ykkur til mín.

Best,
B.

10:58 PM  

Post a Comment

<< Home