Wednesday, December 13, 2006

Myndir á eftir desembergetraun.


Byrjum á Thanx. Við hittumst nokkrar fjölskyldur heima hjá Sollu og Gunna og borðuðum mikinn og góðan mat. Flestir segjast saddir við tilhugsunina en við værum bara til í meira. Þarna eru skvísurnar þrjár, Hrafnhildur Hekla, Arndís og Andrea.


Gönnsó sá um stuffing og bara nokkuð sáttur. Enn sáttari var undirritaður þegar hann fékk að vaska upp eftir eldamennskuna.

Gríðarlegt álag á drengjunum, Gunni, Grímur og Hjalti.

Singstar keppni var haldin eftir mat og rústuðum stelpurnar strákunum. Og ég valtaði gjörsamlega yfir kallinn enda gerir hann nú flest betur en að syngja.

Það snjóaði í tvo daga í Seattle og allt fór rugl.

Hrafnhildur Hekla var sátt við þetta og fékk frí í leikskólanum þessa daga því það lamaðist allt. Hún reynir yfirleitt að komast hjá því að fara í leikskólann og segir núna á morgnana að það sé hálka og við komumst hvergi.

Söknuður í Seattle. Helmingur fjölskyldunnar okkar síðastliðna þrjá mánuði kvaddi okkur fyrir viku. Það var dáldið erfitt en rosa gott að hafa þau þennan tíma sem við vorum að aðlagast aðstæðum. Sem betur fer býr fleira gott fólk á svæðinu svo við hljótum að spjara okkur.

Þau bjuggu hjá okkur síðustu 12 dagana og buðu fjölskyldunni á argentískt steikhús í þakklætisskyni.

Hvort ætlaði hún að skoða sig eða myndina af sér í speglinum?

Jólaball Íslendingafélagsins. Hrafnhildur er dáldið smeik við sveinka en Andrea gat hjálpað henni þegar hún var spurð hvað hún vildi fá frá honum, stelpan vill barbiehouse.

Við héldum litlu jólin kvöldið áður en helmingurinn yfirgaf okkur, borðuðum kalkún og skiptumst á pökkum. Aðeins að saxa á spennuna hjá Hrafnhildi, babyborn verður heit fram að jólum.

Það er ekki hægt að segja annað en maður sakni hans!

Hrafnhildur er búin að vera heima sl þrjá daga með stíflaðan nebba og smá hósta. Við fórum í druggann í gær og keyptum stöff fyrir hana og hún er betri í gær en í dag. Það kemur kannski ekki á óvart að pabbi hennar, sem snýtir sér bara í aloa vera pappír, keypti þurrkur með lotioni og mýkingakrem undir nefið fyrir barnið.

Svo er það græja ársins. Fórum í Costco í fyrradag og keyptum þessa. Það er ekki hægt að horfa á hana og segja að maður þurfi ekki svona græju. Ég þurfti aðeins að sannfæra Grím en ég heyrði hann í dag tala um litla kútinn sinn og eiga orðaskipti við ryksuguna. Við skelltum okkur í bíltúr í gær að skoða jólaljósin og svo út að borða. Þegar við komum heim var kvikindið búið að ryksuga íbúðina. Hvað getur maður sagt?

Gunni og Mæja gáfu Hrafnhildi þetta súkkulaðidagatal. Ef myndin prentast vel sést að Hrafnhildur misskildi tvennt við gjöfina: a) hugtakið dagatal, og b) hvernig ætlast er til að ná molunum úr prísundinni. Held henni hafi verið nokkuð sama.

Minni að lokum á desembergetraunina. Góð tilgáta hjá Önnu Þorbjörgu, en ekki rétt. Áramótaheit krefst aga, þolgæðis og festu. Skemmtiferð til Santa Monica er frábær hugmynd, en inniheldur ekkert af framangreindu.

Kv. A & G

10 Comments:

Blogger Fjölskyldan Barðaströnd 4 said...

Skemmtilegt svona hjónablogg!!!

Cheers,
B.

1:00 AM  
Blogger Fjölskyldan Barðaströnd 4 said...

Gott að heyra að Hrafnhildur er "betri í gær en í dag". Þá er þetta allt að koma.

Ef heimurinn þekkir Grím rétt þá ætlar hann að setja sama ömurlega nýársheitið.... og kannski bæta því við að nýta allan skotveiðiútbúnaðinn sinn með því að veiða fyrstu gömlu rjúpuna sína.

Viddi.

1:10 AM  
Anonymous Anonymous said...

Mér finnst nú alveg augljóst hvað áramótaheitið á að vera. Það er að vera góður við grannana í Grænumýri 18, (efri hæð)þegar þið komið heim, bjóða þeim reglulega í mat og passa svo stubbana fyrir þá svona ca. aðra hverja helgi.
Kv. Erla Kristín.

1:24 AM  
Anonymous Anonymous said...

Sé að Mohammed Al-Fayed skyrta Hressa fellur vel í kramið hjá kananum. Spurning hvort að hún batni með aldrinum.

2:37 AM  
Anonymous Anonymous said...

Getur verið að ryksugan tali
íslensku! Bara grín í sambandi
við getraunina.Það er gaman að
sjá Hrafnhildi í amerískum snjó.
Þetta eru allt skemmtilegar myndir.
Kv.A.G.

8:30 AM  
Anonymous Anonymous said...

Æji, hvað maður saknar ykkar.

Batakveðjur til Heklu.

Helmingurinn

5:17 PM  
Anonymous Anonymous said...

Æðislegt blogg. Ég vil nýtt svona á hverjum degi. Er nokkuð til of mikils ætlast?

Ég hló alveg upphátt að dagatals-myndinni. Ég náði alltaf að narra litlu systur til að deila sínu dagatali með mér 1. desember. Foreldrar okkar sáu þó aumur á henni og hún fékk nýtt að mig minnir (eða mitt?)

Agi, þolgæði og festa? Kannski að þið hafið beðið svona lengi með ferðina... Ég stend á gati, hlakka til að heyra heitið.

Kossar og knús,
Anna Þorbjörg

4:21 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hello darlings

Skemmtilegt blogg og myndir.

Á svo ekki að fara að koma með svarið við getrauninni.

Eitt enn, hvað er heimilisfangið ykkar?

tjús,
Berglind

9:07 AM  
Anonymous Anonymous said...

Svarið hlýtur að fara detta inn.

Heimilisfangið okkar er
6367 NE Radford Drive, #4013
Seattle, WA 98115
USA

AB

Og Berglind, ég hugsa til þín eftir níu daga og góða skemmtun.

9:58 AM  
Anonymous Anonymous said...

Takk elskan.

Ykkar verður sárt saknað.


Luv,
Berglind

12:34 AM  

Post a Comment

<< Home