Wednesday, February 14, 2007

Bloggleysi

Ástæðan er 24. Við hjónin höfum nú loksins fundið okkur sameiginlegt áhugamál og dælum diskunum í spilarann. Hrafnhildur Hekla fer að sofa fyrir átta, svo er maraþon áhorf hjá okkur á kvöldin og látum okkur dreyma Bauer á nóttunni. Tölvan lenti einnig í smá óhappi svo vélin hefur ekki verið tæmd og lítið farið fyrir því að taka myndir. Það hefur ítrekað verið óskað eftir því að sjá bumbumyndir en þær eru frekar fáar, amk bumbumyndir þar sem barnið er í bumbunni. Ég læt þó eins og eina til tvær detta.

Mæðgurnar
Kjéllingin
Í dag er dagur elskanda hér í USA. Hrafnhildur Hekla fór með Valentínusarbók fyrir vinkonu sína í leikskólann og fékk aðra í staðinn. Hún fór líka með kort handa kennurunm sínum þar sem hún skrifaði sjálf undir eins og sjá má á myndinni. Þetta er augljóslega stórt H, lítið e, k, l og a.

9 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Innilegar hamingjuóskir með
afmælið elsku Anna Björg.
Óskum ykkur alls góðs.
Hlýjar kveðjur frá Selbraut.A.J.

3:57 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með afmælið elsku Anna mín.
Gaman að sjá myndirnar, þú lítur svo vel út.
Við vorum líka að tékka á 24 og horfðum á fyrsta þátt í fyrstu seríu, Krilli litli sofnaði og ég fór bara að horfa á SATC. Eðlileg eða?
Jæja elskan, hafðu það rosa gott í dag. Bið að heilsa fjölskyldunni.

Þúsund kossar,
Berglind

3:57 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til lukku með daginn elsku Anna mín :o)

Knús,
Adda Mæja

6:52 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn mín kæra... þú lítur ofsalega vel út og alltaf jafn sæt...
Greinilegt að prinsessan á stutt í skrautskriftina ;-)
Bestu kveðjur Erla Dögg

10:50 AM  
Blogger Fjölskyldan Barðaströnd 4 said...

Hi my sweetie siss!
Til lukku með daginn. Heyri í þér aftur á eftir.
Þú lítur rosalega vel út.
Tons of kisses,
þín B.

1:12 PM  
Anonymous Anonymous said...

Elsku Anna mín!
Innilega til hamingju með afmælið vona þú hafir það gott og getir notið dagsins vel. Þú lítur mjög vel út:-)Bið að heilsa H og G.
koss og knús,
Lísa

2:14 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn Anna mín.

Kv. af Melabrautinni

12:33 AM  
Anonymous Anonymous said...

innilega til hamingju með daginn Anna. Vonandi hefurðu haft það gott.
kv. Erla Kristín

1:42 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með afmælið í gær Anna mín.
Gaman að fá loksins að sjá almennilegar bumbumyndir af þér, þú lítur rosalega vel út :)
kv. Sibba

3:28 AM  

Post a Comment

<< Home